Á dögunum var efnt til mikilla veisluhalda á vegum Sjálfstæðisflokksins og Ríkisstjórnar Íslands.
Móttaka hófst síðdegis í landssímahúsinu með fordrykk í boði PricewaterhouseCoopers og ávarpi Friðriks Pálssonar stjórnarformanns Símans.
Geir H. Haarde þakkaði "Frikka góð ráð" og færði honum pappírstætara að gjöf. Eigendur hússins færðu Landsímanum listaverkið Kjötkatlarnir, forláta koparstungu frá Gallerí Borg, (uppruni ókunnur) og Fjárfestingabanki Atvinnulífsins boðsendi handfrjálsan búnað frá @IPBell.
Vilhjálmur Þ. borgarfulltrúi og formaður Sambands Íslenskra Sveitarfélaga veitti Þórarni V. Þórarinssyni styrk frá Landgræðslusjóði Skeljungs vegna trjáræktarátaks á Þingvallasvæðinu og hafði á orði að frumkvæði Þórarins félli vel að Staðardagskrá 21 um sjálfbæra þróun sveitarfélaga.
Að svo búnu héldu ráðherrar og föruneyti að Þjóðmenningarhúsinu þar sem Salome Þorkelsdóttir og Jóhannes Nordahl tóku á móti þeim.
Var nú borin fram forréttur að hætti hússins, flamberaðir humarhalar með fjallagrösum frá Eyjabökkum í boði Landsvirkjunar og kampavínskrap í boði Norsk Hydro. Aðalrétturinn var gæsabringa frá Þjórsárverum í boði stóriðjunefndar en snigla- og grænmetisblanda kom frá Ágæti, óáfengir drykkir frá Vífilfelli, borðvín frá einkavæðinganefnd og aðsendar blómaskreytingar frá Sjóvá Almennum.
Var brugðið á leik og leynigestur afhjúpaður, sem reyndist vera Sverrir Hermannsson formaður Frjálslyndra, fyrrum ráðherra og bankastjóri og þingmaður fyrir lífstíð. Ávarpaði Sverrir fyrrum félaga sína í óbundnu máli, fjallaði m.a. um fluguhnytingar, skilaði kveðju frá Eggert Haukdal, og fullyrti að uppgræðsla Símans þyrfti að ná víðar, það væri örfoka land við margar gjöfular laxveiðiár.
Ræðumaður kvöldsins var hinn kjarnyrti þingmaður, Vilhjálmur Egilsson, formaður Verslunarráðs Íslands. Boðaði hann einkavæðingu Þjóðhagsstofnunar, Samkeppnisstofnunar, og Fangelsismálastofnunar við mikinn fögnuð. "Það á að leggja fjármálaeftirlitið niður, selja Rás 2, helst úr landi, og sameina ÁTVR og Landsímann". Einnig boðaði hann aðgerðir gegn óráðsíu og samneyslu.
"Þrjátíu milljón króna halli hjá Múlalundi er gott dæmi um kerfisbundið sukk, verndaðir vinnustaðir keppa við einkaframtakið og eiga ekki að seilast í vasa hins opinbera", sagði Vilhjálmur. Að lokum fjallaði hann um þann óréttláta tímamismun sem ríkir á milli Íslands og helstu markaða okkar, bæði austan hafs og vestan.
Þurfti Vilhjálmur ítrekað að gera hlé á máli sínu vegna lófataks. Reis Sólveig Pétursdóttir úr sæti og bað fólk að lyfta glösum og hylla Vilhjálm. Eftirréttur var í boði Eimskipafélagsins, innflutt ísterta, kaffisopi kom frá Þyrpingu og útrunninn konfektmoli frá Sölu Varnarliðseigna. Loksins var röðin komin að sjálfum Davíð Oddsyni forsætisráðherra. Hóf hann mál sitt á að útskýra hvernig honum hafi tekist að tolla svona lengi í embætti. "Að halda völdum felst ekki í því að ráða niðurlögum andstæðinga sinna heldur því að láta þá hverfa". Vitnaði Davíð m.a. í íslendingasögurnar máli sínu til stuðnings en á landnámsöld hafi óeirðaseggir verið gerðir útlægir til að skapa frið heimafyrir. Því hafi hann skipað andstæðinga sína sendiherra og vissi ekki betur en að þeir undu hag sínum vel.
Hvatti forsætisráðherra Björn Bjarnason að etja kappi við borgarsjóra eða fara utan ella og lofaði að taka upp stjórnmálasamband við hvaða ríki sem væri til að tryggja framtíð ráðherrans. Að svo búnu veitti hann Sturlu Böðvarson verðskuldaða traustsyfirlýsingu. Lék forsætisráðherra á alls oddi þar til boðið var upp á koníak og dans í Þjóðleikhúskjallaranum. Til að draga úr risnukostnaði ríkisins fóru fyrirmennin undantekningalaust fótgangindi frá Þjóðmenningarhúsinu yfir í Þjóðleikhúsið undir öruggri leiðsögn Securitas-Vara.
Þar hlutu þeir höfðinglegar móttökur Árna Johnsens sem færði viðstadda í sannleikann um endurbætur á innviðum leikhússins. Vakti sérstaka aðdáun útflúruð ljósakróna sem hvarf sporlaust úr búsáhaldadeild Bykó fyrir nokkrum árum. Var borið fram Koníak eins og menn vildu í sig láta í boði Þjóðskjalasafnsins, gratineraðar sjávarréttartartalettur frá LÍÚ og smákökur frá Íslenskum Aðalverktökum. | Náði stemmingin hámarki þegar forysta flokksins, forstjórar helstu fyrirtækja og ríkisstofnana landsins, og makar þeirra sungu "Áfram Kristmenn Krossmenn" undir stjórn Árna. Vildi svo illa til að uppfærsla gamanleikritsins "Gjugg í borg" eftir Hörð Sigurgestsson stjórnarformann Flugleiða sem fram fór á litla sviðinu varð fyrir óverulegri röskun af völdum kórsins. Brást Hörður ókvæða við og var plötusnúður kvöldsins, Eyþór Arnalds sendur yfir til gera gott úr. Var nú sungið "Hamagangur á hóli" á lágu nótunum undir stjórn Thómasar Inga Ollrich. Á barnum náðu Hannes Hólmsteinn og Hrafn Gunnlaugsson að króa af ómótaðan heimdelling sem hlýddi í forundran á vitringana lýsa því hvernig kommúnistar hafi hertekið Morgunblaðið með aðsendum greinum. "Það trúði enginn Þjóðviljanum, nú birtast lygarnar í mogganum og fólk trúir þeim", sagði Hannes. "Sjáiði bara" bætti Hrafn við, "Björn Bjarnason vildi breyta Perluni í byggðasafn og mogginn grjótheldur kjafti".
Halldór Blöndal forseti alþingis sagði gamansögur og kvað rímur í Koníakstofunni og státaði sig af því að draga iðulega af ræðutíma Ögmundar Jónassonar. "Ég byrja bara að djöflast á bjöllunni áður en tíminn er búinn", sagði Halldór og sló með teskeið í kristalglas sessunautar síns og splundraði því.
Í hliðarsal kjallarans fór fram eftirminnileg Karaokí keppni í boði Hótels Rangár þar sem Inga Jóna varð illa undir með lagið, "Það er draumur að dansa við dáta" en Kári Stefánsson forstjóri Erfðagreiningar gerði stormandi lukku með ellismellinn "Singing in the Rain". Birgir Ísleifur Gunnarsson seðlabankastjóri lauk ekki keppni með "Ó borg þú borg". Gunnar Birgisson þingmaður, og bæjarfulltrúi hrepti fyrsta sætið með "Fatlafól " og ætlaði allt um koll að keyra þegar hann endurtók sigurlagið. Annað
menningarframlag kvöldsins var einþáttungurinn "Silkihúfurnar" eftir Kjartan Gunnarsson framkvæmdastjóra flokksins, höfundur lék. Við háborðið afhenti forstjóri Ístaks Davið Oddsyni handofna gólfmottu frá Bangladesh í nýja húsið. Hreinn Loftsson færði Davíð ávaxtakörfu frá Hagkaup og Bónus sem tákn um sáttavilja. Ari Edvald gaf málverk af George Bush fyrir hönd Samtaka Atvinnulífsins og Markús Örn gamlar upptökur af Útvarp Matthildur á spólu. Búnaðabankinn færði Davíð Gestabók frá London, Samtök um vestræna samvinnu gáfu Dagbók Móniku Lewinsky, og Samtök Fiskvinnslustöva "Mínútustjórnun, fyrsta bindi" eftir Árna Matthissen.
Eftirfarandi aðilar kostuðu miðnætursnarl á þjóðlegum nótum. Hákarl: Útflutningsráð Íslands, reyktur lax og marineruð síld: Hekla, slátur og sviðakjammar: Flugeldhús, harðfiskur: Pharmaco, hrútspungar: Opin Kerfi, rófustappa: Lyfjaverslun Íslands og Vodka: Tollvörugeymslan.
Þegar forsætisráðherra hóf upp raust sína á nýjan leik ætlaði þakið að rifna af húsinu og losnuðu fyllingar úr tönnum manna í hlátursköstunum. Sérstaka kátínu vöktu orð forsætisráðherrans um alþjóðasamninga smáríkisins Ísland. Tók hann sem dæmi að varnarsamningurinn við Bandaríkin væri runninn út fyrir löngu en í Washington hefði enginn tekið eftir því. "Það mætti láta Þór Whitehead rannsaka hvernig okkur hefur reitt af síðan". Einnig vissu kollegar sínir í Evrópu ekkert um EES samninginn, hvað þá að hann væri til. "Ég hef engan hitt sem hefur lesið þennan samning nema Hjörleif Guttormsson og honum leist ekki á hann, hann er búin að prófarkalesa hann líka og samningurinn lagaðist ekkert við það", bætti hann við, "Góðærið býr hér", voru lokaorð Davíðs undir dynjandi lófataki viðstaddra sem dönsuðu fram eftir nóttu til að efla tengslin sín í millum, þjóðinni til heilla.
Þessi frétt er uppspuni frá rótum, ef einhverjir einstaklingar líkjast þeim sem hér er lýst, þá er það tilviljun.
Ragnar A. Þórsson.
|