Ársþing 2009
Ársþing
Samtaka fámennra skóla verður haldið að Stórutjarnaskóla 9. maí
Dagskrá þingsins:
Ársþing Samtaka fámennra skóla
Menntun á tímum uppgjörs og endurnýjunar: Samtök fámennra skóla 20 ára
Ársþing Samtaka fámennra skóla 2009
verður haldið í Stórutjarnaskóla í Þingeyjarsveit laugardaginn 9. maí nk
og hefst kl 13:30. Yfirskrift þingsins að þessu sinni er:
Menntun á tímum uppgjörs og endurnýjunar: Samtök fámennra skóla 20 ára.
Á þinginu verður 20 ára afmælis samtakanna minnst en síðan verða fluttir
eftirfarandi fyrirlestrar með tilheyrandi umræðum:
·
Það þarf þorp til að mennta barn – og barn til að mennta þorp:
Rúnar Sigþórsson dósent við Háskólann á Akureyri
·
Hvað finnst mér
eða hvað finnst ykkur að mér eigi að finnast? Um sjálfstæða hugsun og
búsetu:
Ævar Kjartansson útvarpsmaður
·
Byggðir og bú. Um
stoðkerfi menntunar í dreifbýli.:
Óli Halldórsson forstöðumaður Þekkingarseturs Þingeyinga
Aðalfundur Samtaka fámennra skóla verður haldinn síðar um daginn. Þar
verður m.a. lögð fyrir tillaga stjórnar um að samtökin verði lögð niður.
Því er mikilvægt að sem flestir, sem láta sig varða málefni fámennta
skóla mæti á fundinn. Í lögum félagsins segir m.a.:
2. grein
Hlutverk samtakanna er að efla samstarf og samskipti fámennra skóla,
stuðla að bættu og fjölbreyttara skólastarfi og standa vörð um hagsmuni
skólanna.
3. grein
Félagar geta orðið kennarar, leiðbeinendur og skólastjórar í fámennum
skólum á öllum skólastigum. Einnig allir þeir sem áhuga hafa á
fræðslumálum og vilja leggja félaginu lið.
Skráningarfrestur er til 4. maí nk og skulu skráningar berast á
netfangið
oliarn@storutjarnaskoli.is
Skráningargjald er kr 2.000- (síðdegiskaffi innifalið). Þeir sem ætla
að taka þátt í hátíðarkvöldverði og árshátíð SFS (kr 3000-) taki það
fram sérstaklega. Eins þarf að taka fram hvort fólk ætlar að gista á
staðnum, en boðið er upp á fjölbreytta möguleika á gistingu, allt frá
svefnpokaplássi upp í tveggja manna herbergi með baði.
Ársþing>2007
Dagskrá
og fyrirlestrar ársþings Samtaka fámennra skóla
Árgarði í Lýtingsstaðahrepp hinum forna
föstudaginn 27. apríl 2007
10:00
Setning
Þórunn Júlíusdóttir formaður Samtaka
fámennra skóla
Ávörp gesta
Fulltrúi sveitarfélagsins Skagafjarðar
Skúli Skúlason rektor Háskólans á
Hólum
11:00 Skólamálanefnd
Sambandsins íslenskra sveitarfélaga
Gunnar Gíslason fræðslustjóri, nefndarmaður
í skólamálanefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga
11:20 Náttúra
Skagafjarðar Fræðsluvefur
Sólrún Harðardóttir
11:40 Á heimaslóð
Vefur um grenndarkennslu fyrir miðstig
Eygló Björnsdóttir, Háskólanum á
Akureyri
12.00 Sérstaða framhaldsskóla,
hvernig nýta þeir sér hana með ýmsum
námsbrautum
Jónína Rós Guðmundsdóttir, kennari Menntaskólanum
á Egilsstöðum
12:30 Matur - Steinsstaðir
13:30 Útikennsla
og útikennslustofa Norðlingaskóla
(sjá
líka vef Norðlingaskóla)
Þóranna Rósa Ólafsdóttir aðstoðarskólastjóri
og Eybjörg Dóra Sigurpálsdóttir kennari Norðlingaskóla
14:10 Leikskóli-grunnskóli-framhaldsskóli-háskóli
á Laugarvatni, samvinna og umhverfi.
Sólveig Björg Aðalsteinsdóttir leikskólastjóri
14:30 Samfélagslegt
hlutverk fámenna skólans
Meistaraverkefni kynnt
Fanney Ásgeirsdóttir skólastjóri Vestmannaeyjum
15.00 Útinám - glærur ekki komnar 7.5. 2007
Jakob Frímann Þorsteinsson aðjúnkt KHÍ
15:30 Kaffi
16:00 Aðalfundur SFS
17:00 Umhverfisleiðsögn, útinám og útivist
- myndir
19:00 Hlé
20:00 Hátíðarkvöldverður að hætti
samtakanna - Bakkaflöt
Fréttatilkynning
frá þinginu