Ágætu ráðstefnugestir,
Það er mér bæði heiður og
ánægja að fá að setja þessa
ráðstefnu. Efnið er brýnt og hér er
fjölbreytt dagskrá í boði sem er
tilhlökkunarefni að fá að fylgjast með og
taka þátt í. Hér verður fjallað um
byggðaþróun, rannsóknir á
skólastarfi og þróunarstarf á öllum
skólastigum og hér munu fara fram umræður um
leiðir til að styrkja skólastarf og efla samstarf
skólafólks á ólíkum
skólastigum hvarvetna um landið.
Öllum er ljóst að skólastarf í hinum
dreifðu byggðum á nú víða undir
högg að sækja. Það er því
áríðandi að leita allra leiða til að
styrkja menntun á landsbyggðinni. Í þessum
efnum má hvergi til spara enda ljóst að öflug
menntun er ein mikilvægasta forsenda menningar og
góðs mannlífs.
Við í Kennaraháskólanum höfum á
undanförnum árum lagt mikla áherslu á
að sýna í verki að hann er, og hefur reyndar
alltaf verið, skóli allra byggða. Aðalbyggingar
hans eru vissulega í Reykjavík, en á Laugarvatni
er Íþróttafræðasetur skólans og
fer þar fram mikil uppbygging um þessar mundir. Einnig
hefur skólinn haft aðstöðu að Varmalandi
í Borgarfirði þar sem hugmyndir hafa verið uppi
um að byggja upp fræðslu- og
endurmenntunarmiðstöð fyrir allt landið.
Starfsfólk Kennaraháskólans hefur á
undanförnum árum kappkostað að styðja betur
við skólastarf í hinum dreifðu byggðum.
Þar ber fyrst að telja fjarnámið okkar,
bæði grunnnám og framhaldsnám en um 700
nemendur stunda nú fjarnám við skólann og er
þess að vænta að á næsta
skólaári (2001-2002) verði þeir vel á
tíunda hundrað. Enginn skóli á landinu hefur
jafn margar nemendur í fjarnámi og þessir
nemendur eru búsettir um allt land og raunar um allan heim.
Fjarnám er nú í boði fyrir leik-, grunn- og
framhaldsskólakennara og á næsta ári
verður slík námsleið í boði fyrir
þroskaþjálfa. Þá hefst í haust
ný námsbraut fyrir starfsfólk sem vinnur að
tómstundamálum í grunnskólum,
framhaldsskólum, félagsmiðstöðvum,
íþrótta- og
æskulýðsfélögum og á
öðrum vettvangi tómstunda og frítíma.
Hér er um að ræða 45 eininga starfsmiðað
nám, þ.e. nám sem tengist starfi á
sviði tómstunda og félagsmála. Þetta
nám verður með fjarnámsniði. Enn má
nefna nýja 30 eininga námsbraut fyrir starfandi
íþróttakennara um
íþróttafræði og
heilsuþjálfun, en þessi námsleið byggir
á fjarnámi og hefst næsta haust.
Allar þær stéttir sem
Kennaraháskólinn þjónar hafa sýnt
framhaldsnámi skólans mikinn áhuga en
það er að lang mestu leyti skipulagt með
fjarnámsniði. Í framhaldsnáminu eru
nú um 280 kennarar, þroskaþjálfar,
skólastjórar og kennsluráðgjafar
víðs vegar að af landinu og verða nær 350
næsta skólaár. Ekki má heldur gleyma
endurmenntunarnámskeiðum Símenntunarstofnunar en
þar er nú m.a. verið að þróa
vefnámskeið sem unnt verður að stunda hvaðan
sem er, nánast hvenær sem er. Þá hefur
Rannsóknarstofnun skólans þjónað
skólum og sveitarfélögum með ýmsum
hætti með rannsóknum, mati á
skólastarfi og ráðgjöf.
Vaxandi áhersla hefur verið lögð á að
fjalla um nám og kennslu í fámennum
skólum í kennaranáminu við
Kennaraháskólann. Þessi umfjöllun hefur
tengst skyldunámskeiðum í kennslu- og
námskrárfræði og einnig hafa
valnámskeið um þetta efni verið í
boði. Í þessu sambandi má nefna að
öllum nemendum í grunnskólakennaranámi er
gert að lesa handbókinina Vegprest sem Samtök
fámennra skóla gáfu út árið
1995, en þar er fjallað um nám og kennslu í
fámennum skólum frá ýmsum hliðum.
Skólastarf í hinum dreifðu byggðum kemur einnig
við sögu í framhaldsnáminu við
skólann. Skemmtilegt er að geta þess að á
þessari ráðstefnu mun Þóra Björk
Jónsdóttir, kennsluráðgjafi við
Skólaskrifstofu Skagfirðinga og brautskráður
meistari frá framhaldsdeild Kennaraháskólans,
gera grein fyrir niðurstöðum
meistararprófsverkefnis síns sem hún byggði
á rannsókn á viðhorfum
grunnskólakennara í dreifbýli.
Við í Kennaraháskólanum höfum fylgst af
áhuga með starfi Samtaka fámennra skóla og
og fulltrúar frá skólanum hafa tekið virkan
þátt í starfi samtakanna og koma m.a. að
undirbúningi þessarar ráðstefnu. Við
þökkum samtökunum frumkvæðið að
þessari áhugaverðu og mikilvægu
ráðstefnu en að henni standa, auk Samtakanna:
Félag íslenskra leikskólakennara,
félagsvísindadeild Háskóla
Íslands, kennaradeild Háskólans á
Akureyri, Kennaraháskóli Íslands, Kennarasamband
Íslands, menntamálaráðuneytið og Samband
íslenskra sveitarfélaga. Það er
auðvitað sérstakt ánægjuefni að
þessir aðilar sameinast um þetta mikilvæga
framtak.
Með þessum orðum leyfi ég mér að
setja ráðstefnuna Menntun í dreifbýli.