Vefprestur:

Ávarp undirbúningsnefndar

Ávarp undirbúningsnefndar á ráðstefnunni Menntun í dreifbýli, Stórutjarnaskóla, 28. apríl 2001 (Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, dósent við kennaradeild Háskólans á Akureyri)

Hugmyndin að þessari ráðstefnu varð til skömmu fyrir síðustu jól á meðal fólks sem hefur starfað á vettvangi Samtaka fámennra skóla og teygir sig inn Kennaraháskóla Íslands og kennaradeild Háskólans á Akureyri. Okkur þótti sem starf Samtakanna hefði dregist of mikið saman og fórum að velta fyrir okkur hvað væri til ráða. Og hvað var þá til ráða?

Við álitum að eitt af því sem gæti orðið gagnlegt væri aukin umræða um menntun í dreifbýli og það varð úr að sex úr okkar hópi skipuðu sjálf sig í bráðabirgðaundirbúningsnefnd og fengum leyfi ofangreindra þriggja aðila til að koma fram í þeirra nafni við að safna liði. Við ákváðum strax efni ráðstefnunnar, að ráðstefnan skyldi ná til allra skólastiga og að hún yrði hér á Stórutjörnum. Við buðum allmörgum aðilum aðild að ráðstefnunni og úr varð að eftirtaldir eru formlegir aðilar með einhverjum hætti: Félag íslenskra leikskólakennara, félagsvísindadeild Háskóla Íslands, kennaradeild Háskólans á Akureyri, Kennaraháskóli Íslands, Kennarasamband Íslands, menntamálaráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga og Samtök fámennra skóla. Hlutur þessara aðila er ýmist þátttaka í undirbúningi, fyrirlestrar eða fjárstyrkur.

Markmið ráðstefnunnar höfum við skilgreint að efla umræður um leiðir til að styrkja skólastarf og efla samstarf skólafólks á ólíkum skólastigum hvarvetna um landið. Það er sannfæring okkar að svo víðtækt samstarf margra félaga og stofnana sem vinna að menntun á ólíkum skólastigum og raunar utan hins opinbera skólakerfis sé til góðs fyrir menntun í landinu. Í þessu sambandi vil ég nefna að mér er sérlega minnisstæð fyrsta ráðstefna sem ég sat eftir að ég flutti til Akureyrar til að starfa við Háskólann. Hún var um gæðastjórnun og hana sótti fagfólk af ólíkum skólastigum auk sveitarstjórnarfólks og áhugafólks um menntamál.

Til að tala á þessari ráðstefnu höfum við fengið sérfræðing frá Byggðastofnun og formann Jafnréttisráðs, sem jafnframt er sveitarstjórnarmaður, til að opna og loka fyrirlestraröðráðstefnunnar. Þess á milli talar fagfólk um skólastarf og rannsóknir á öllum skólastigum auk þess sem skýrt verður frá fullorðinsfræðsluverkefni. Umræður um hvert erindi verða ekki en gert er ráð fyrir fyrirspurnum tvívegis í dagskránni en ef dagskráin fer úr skorðum verða umræður í lok dags að mæta afgangi þannig að við getum komist í hugarflugsvinnu síðdegis sem verður kynnt áðuren síðdegiskaffihlé hefst

Mjög auðvelt reyndist að fá fólk til að tala á ráðstefnunni, jafnvel svo að búumst við því að við hefðum getað fyllt annan dag af fyrirlestrum, og eykur það bjartsýni okkar um framtíð menntunar í dreifbýli. Við þökkum við áhuga og undirtektir. Fyrirlesarar verða kynntir stuttlega hér á eftir. Ég vil taka fram að áformað er að birta flest erindin á Netinu.

Þessi sátu í undirbúningsnefnd:

Vil ég nota tækifærið og þakka þeim öllum kærlega fyrir samstarfið.

Vefprestur