Þá er komið að lokum
þessarar ráðstefnu. Markmið hennar var að
efla umræður um leiðir til að styrkja
skólastarf og efla samstarf skólafólks á
ólíkum skólastigum hvarvetna um landið.
Við höfum fræðst um það sem þegar
hefur verið gert og auk þess hefur verið bent á
fleiri leiðir og möguleika.
Ég þakka öllum sem hér hafa lagt af
mörkum: tónlistarfólki, fyrirlesurum,
fundarstjórum, húsráðendum og öðru
aðstoðarfólki. Fyrir hönd þeirra sem
staðið hafa að þessari ráðstefnu
færi ég undirbúningsnefndinni bestu þakkir
fyrir gott starf og leyfi mér þar sérstaklega
að nefna Ingólf Á. Jóhannesson en
það var hann sem átti hugmyndina að
ráðstefnunni og hann hefur verið leiðandi í
öllum undirbúningi hennar.
Þessi ráðstefna hefur verið sérlega
fróðleg. Hún hefur einnig verið skemmtileg og
uppbyggileg. Hér hafa komið fram fjölmargar
áhugaverðar hugmyndir sem unnt verður að byggja
á. Áríðandi er að áfram verði
haldið við að leita allra leiða til að efla enn
menntun í dreifbýli.
Með þessum orðum slít ég
ráðstefnunni.