Lög Samtaka fámennra skóla

 

1. gr.

Nafn félagsins er Samtök fámennra skóla, skammstafað S.F.S.

2. gr.

Hlutverk samtakanna er að efla samstarf og samskipti fámennra skóla, stuðla að bættu og fjölbreyttara skólastarfi og standa vörð um hagsmuni skólanna.

3. gr.

Félagar geta orðið: Kennarar, leiðbeinendur og skólastjórar í fámennum skólum á öllum skólastigum. Einnig allir þeir sem áhuga hafa á fræðslumálum og vilja leggja félaginu lið.

4. gr.

Reikningsár er milli aðalfunda. Árgjald skal ákveðið á aðalfundi ár hvert og innheimt sem fast gjald á hvern fámennan skóla.

5. gr.

Samtökin skulu halda haustþing árlega til skiptis í fræðsluumdæmum hinum fornu í tengslum við aðalfund. Til aðalfundar skal boðað með minnst mánaðar fyrirvara. Fráfarandi stjórn leggur fram tillögu um næstu stjórn og varastjórn sem kjósa skal á aðalfundi. Stjórnin skal skipuð fimm mönnum sem búsettir eru í sama fræðsluumdæmi og fimm varamönnum, búsettum í því fræðsluumdæmi sem næst heldur aðalfund. Varastjórn tekur sjálfkrafa við af aðalstjórn.

6. gr.

Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum: formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og meðstjórnandi.

Stjórn og varastjórn skulu halda sameiginlegan vorfund þar sem ákveðin er dagskrá haustþings.

7. gr.

Stjórn skipar tengiliði í hverju umdæmi.

8. gr.

Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi með einföldum meirihluta atkvæða fundarmanna.

9. gr.

Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á aðalfundi Samtaka fámennra skóla á Stórutjörnum 20. okt. 2001


Heimasíða Samtaka fámennra skóla