Vegprestur - Kennslufræðileg umfjöllun um samkennslu: Aldursblöndun

(Byggt á 6. kafla bókarinnar Udelt og Fådelt skole - ei innföring, eftir Nils Eckhoff).

Lauslega þýtt og staðfært af
Hafsteini Karlssyni.

Eitt helsta einkenni fámennra skóla eru aldursblandaðir námshópar og mikil samvera barna á ólíkum aldri. Um gildi þessa hafa verið skiptar skoðanir og hér á eftir verður reynt að draga fram nokkra þá kosti sem þessi tilhögun hefur ótvírætt í för með sér. Þar sem ólíkir aldurshópar eru saman færast ýmsir siðir, venjur og þekking frá þeim sem eldri eru til hinna yngri. Þar má nefna samvinnu og samkennd og hæfni til að taka þátt í og skilja þjóðfélagið. Þetta verður ekki lært af bókum, heldur af þeirri reynslu sem við öðlumst af því að vera samvistum við aðra. Barnamenning er mikilvægur hluti af menningu þjóðarinnar. Þeir sem yngri eru læra af þeim sem eru lítið eitt eldri. Það er mikilvægt fyrir börn á aldrinum 4 - 9 ára að umgangast 10 - 12 ára börn. Það er sérstaklega sá aldurshópur sem heldur uppi barnamenningunni og mikilvægum þáttum þess félagslega náms sem fram fer í barnahópnum.

Höfundur vitnar til Berit Östberg sem komst að því að þegar börn leika sér frjálst, fara þau í leiki sem þau hafa lært af öðrum börnum, sjaldan eða aldrei leiki sem fullorðnir hafa kennt þeim. Það, að skilja stór börn frá litlum, getur því haft óheppilegar afleiðingar. Fullorðnir geta ekki komið í stað eldri barna.

Samvera barna á ólíkum aldri er forsenda þess að þekking færist frá þeim eldri til hinna yngri. Yngri börn fá hjálp frá hinum eldri. Þau sem eldri eru líta á sig sem mikilvæga leiðbeinendur hinna yngri. Í aldursblönduðum barnahópum eru eldri börnin oft verndarar hinna yngri. Í stórum skólum hefur sums staðar verið gerð tilraun með að láta eldri börn taka að sér hin yngri og vernda þau til þess m.a. að koma í veg fyrir stríðni og einelti. Þetta hefur þótt gefast vel.

Rannsóknir hafa sýnt að aðlögun að samfélaginu þróast mun meira í aldursblönduðum hópum en í jafnaldra hópi. Eldri börn eru því afar mikilvæg í að miðla menningu og hefðum til yngri barna.

Hópur myndar ákveðin norm og reglur um hvernig á og hvernig á ekki að hegða sér. Hvernig á að koma fram við mismunandi aðstæður. Þar sem hópandinn er neikvæður, er erfitt að halda uppi kennslu í bekk. Mikill tími fer í að halda aga. Hópurinn er mikilvægur í að búa til reglur sem styrkja samheldni og í að halda uppi góðum námsanda. Í báðum tilfellum er mikilvægt að nota þá möguleika sem aldursblandaðir hópar gefa. Rannsóknir hafa sýnt að yngri börn herma eftir þeim eldri. Þau verða því að hafa tækifæri til að vera með eldri börnum svo að þau geti líkt eftir þeim. Í fámennu skólunum gefst þeim þetta tækifæri í ríkum mæli.

Í stórum skólum eru stórir bekkir oft vandamál. Ekki bara vegna þess náms sem þar á að fara fram heldur getur verið erfitt að mynda samkennd og samheldni meðal nemenda. Nemendur geta einnig átt erfitt með að læra að vera í skóla, þ.e.a.s. hvernig maður á að haga sér í skólanum. Aldursblöndun er ákveðin lausn á þessu því að eldri nemendur eru þeim yngri fyrirmynd. Þarna standa fámennir skólar vel að vígi.

Tengslaleysi milli barna og fullorðinna og milli barna innbyrðis veldur mörgum börnum vandkvæðum. Sterk aldursaðgreining er talin geta haft í för með sér aukið ofbeldi. Í uppeldi skipta góðar fyrirmyndir miklu máli. Því er aldursblöndun - bæði barna og fullorðinna - mikilvæg til að skapa tengsl og samfellu í samfélaginu. Það er því miður ekki lengur sjálfsagt að ólíkir aldurshópar umgangist hverjir aðra í þjóðfélaginu eins og áður var.

Til þess að viðhalda menningunni verður að vera eðlilegur samgangur og samskipti á milli allra aldurshópa. Þekking flyst þannig frá kynslóð til kynslóðar. Börn eru ekki síður mikilvæg en foreldrar, stofnanir og skólar í að miðla þekkingu og reynslu. Þar sem börn á ólíkum aldri eru saman er meiri fjölbreytni í leikjum. Yngri börnin læra leikina af hinum eldri og þannig geymast þeir mann fram af manni. Það að börn á ólíkum aldri geti leikið sér saman og unnið saman er mikilvægt sjálfu sér. Mikilvægust eru þó ef til vill hin jákvæðu áhrif sem aldursblöndun hefur á félagslegan, andlegan, málfarslegan og tilfinningalegan þroska barnanna.

Eftir því sem þjóðfélagið hefur orðið flóknara, hefur aldursaðgreining aukist. Það er ekki bara í skólum og leikskólum þar sem skipt er í hópa eftir aldri. Íbúðahverfi eru oft byggð af fólki og fjölskyldum á svipuðum aldri. Þetta hefur þá hættu í för með sér að fólk í nútímaþjóðfélagi missi af ýmsu því sem aldursblönduð samfélög geta ein gefið.

Hér hafa verið dregnir fram ýmsir kostir aldursblöndunar í skólum, leikskólum og samfélaginu öllu. Það er ljóst að aldursblöndun t.d. í stórum skólum, sem lengi hafa haft aldursaðgreiningu, getur valdið nokkrum vandræðum. Má þar nefna námsefni, kennsluaðferðir, útbúnað og húsnæði. Allt eru þetta þó yfirstíganlegir þröskuldar og það væri þess virði að stór skóli gerði tilraun með aldursblöndun.

Rétt er að undirstrika að eins og fámennu skólarnir eru skipulagðir eru þeir mótvægi við hið sífellt aldursaðgreindara samfélag sem við lifum í.


Vegprestur: Yfirlit