Fors´´iða
KENNSLUSTOFA
            FRAMTÍÐAR
SKRÁNING Á RÁÐSTEFNUNA!


    Kennslustofan - Laugardag

    10-10.30

      Tölvufræði í fjarkennslu
      Nemar á fyrsta ári í Fjölbrautaskólanum við Ármúla
      Hólmfríður J. Ólafsdóttir kennir

    Hér er tölvufræði kennd í fjarkennslu. Nemendur sitja við tölvur í Fjölbrautaskólanum við Ármúla og vinna verkefni í tölvufræði. Þeir hafa vefbók til að styðjast við. Kennarinn er staddur í kennslustofu framtíðar í Kópavogi og hefur samband við nemendur með tölvupósti og á spjallrás.


    10-10.30

      Norska og sænska í fjarkennslu
      Grunnskólanemar hér og þar
      Gry Ek Gunnarsson kennir

    Gry kennir börnum norsku og sænsku með hjálp af vefráðstefnukerfi á Íslenska menntanetinu og spjalli á spjallrás. Vefur vegna þessarar kennslu er líka í smíðum. Byggt er á samvinnu Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur, Íslenska menntanetsins og Norrænu tungumálaráðgjafarinnar.


    11-11.30

      Kynning í smíðum
      Börn í 5. bekk Árbæjarskóla í Reykjavík
      Ragnhildur Sigurðardóttir kennir

    Börnin í Árbæ eru að útbúa kynningu um Elliðaárdalinn og ýmislegt sem lýtur að honum. Kynningarsmiðjan í íslenskri útgáfu Námsgagnastofnunar gerir börnum kleift að setja saman texta, myndir, hljóð og hreyfimyndir. Hugbúnaðinn má nota í tengslum við munnleg skil nemenda á margvíslegu efni eða til að útbúa sjálfvirka skjákynningu með tali og öðrum hljóðum.


    12-12.30

      Danskur vefur frá Jyllands Posten
      Nemar í DAN 403 í Fjölbrautaskólanum við Ármúla
      Michael Dal kennir

    Blaðamenn frá Jyllands Posten hafa skipulagt samnorrænt verkefni fyrir árið 2000. Þeir ferðast um heiminn og skrifa greinar um ferðalagið. Greinarnar og viðtöl eru sett á skólavef, JP-Explorer. Vefinn má nota í sögu- og landfræðikennslu og í dönskukennslu eins og með þessum hópi. Slóðin er: www.jp.dk


    13-13.30

      Unglingar í öðrum heimi
      Unglingar í 8. til 10. bekk Árbæjarskóla í Reykjavík
      Johanna Elizabeth van Schalkvyk kennir

    Norræni enskukennsludiskurinn A-Files frá Námsgagnastofnun býður upp á nokkra efnisflokka, mörg skemmtileg viðfangsefni og margmiðlunarleiki ætlaða 12 til 16 ára nemendum. Efnisflokkar eru dæmigerðir fyrir enskunámsefni en öll umgjörðin óvenjuleg og spennandi. Nemendur fá þjálfun í hlustun og heyra mismunandi framburð. Þeir eiga samskipti á ensku við einstaklinga af ýmsu tagi og þurfa að leysa fjölbreytt verkefni.


    14-14.30

      Sýndarrekstur á nýrri starfsnámsbraut
      Nemar á hagnýtri verslunarbraut í Borgarholtsskóla
      Óttar Ólafsson kennir

    Æfingafyrirtæki eru ný leið til að kenna framhaldsskólanemum hvernig fyrirtæki eru skipulögð og starfa. Þau eru rekin í alþjóðlegu neti um 2000 æfingafyrirtækja og umhverfi þeirra er mjög svipað og hjá raunverulegum fyrirtækjum (þurfa að greiða skatta og gjöld, laun, flutningskostnað o.s.frv.). Fyrirtækin eru deildaskipt (stjórn, sala, innkaup, fjármál) og fá nemendur að vinna í hverri deild. Fyrirtækin starfa í lokuðum sýndarheimi og til að spara fé, tíma og fyrirhöfn er lagt kapp á að þróa notkun Internetsins til að miðla upplýsingum, eiga samskipti, markaðssetja vörur og þjónustu og stunda viðskipti.


    15-15.30

      Heimildavinna og sérkennsla
      Unglingar í Hjallaskóla í Kópavogi
      Hulda Rafnars og Guðlaug Snorradóttir kenna

    Hulda vinnur með unglingum að heimildavinnu í forritinu Ísland og umheimurinn frá Námsgagnastofnun. Guðlaug stýrir sérkennslu við Hjallaskóla og vinnur hér með þremur nemendum að lestri og ritun í Myndrún. Tölvutæknin kemur að góðu gagni í sérkennslunni og frá því greinir Guðlaug nánar á blaði sem er til dreifingar í stofunni.


    16-16.30

      List og leikni
      Unglingar í Kópavogi
      Kennarar við Kennaraháskóla Íslands kenna

    Í tölvum geta börn og fullorðnir, sem ekki hafa náð þjálfaðri leikni í handverki, gert lærdómsríkar athuganir og tilraunir í list- og verkgreinum. Hallfríður Tryggvadóttir og Fríður Ólafsdóttir láta hér unglinga spreyta sig á mynsturgerð fyrir textílmennt í tölvu. Gísli S. Þorsteinsson lætur unglinga búa til líkön að smíðisgripum til útprentunar og samsetningar í pappír. Torfi Hjartarson kynnir þjóðsagnavefinn Skrípi með myndum eftir verðandi myndmenntakennara og felur unglingum að mála tröll.

    25.02.1999