Nálægar stofur - Báða dagana
Myndvinnsla og margmiðlun
Nemar á upplýsingatæknibraut við Fjölbrautaskólann við Ármúla
Páll Thayer kennir
Nemendur taka hreyfimyndir af ýmsu sem fram fer á stafræna tökuvél og fást
við myndklippingar og myndvinnslu í öflugri margmiðlunartölvu. Tölvan
stendur á gangi úti fyrir kennslustofu framtíðar. Vinnan er liður í
námskeiði um myndklippingar.
Smásjá og tölva tengd sjónvarpsskjá
Sigurður B. Jóhannesson við Menntaskólann í Kópavogi
Sigurður sýnir hvernig hann notar sjónvarpsskjá í líffræðistofu (næst
kennslustofu framtíðar) til að birta nemendum efni af geisladiskum og
athuganir í smásjá.
Tölvutengd tæki í efnafræði
Kristján Kristjánsson við Menntaskólann í Kópavogi
Kristján sýnir ásamt nemendum tölvutengd tæki í efnafræðistofu (næst
kennslustofu framtíðar).
Tölvutengd tæki í eðlisfræði
Rúnar Þorvaldson við Menntaskólann í Kópavogi
Rúnar verður ásamt nemendum sínum í eðlisfræðistofu (næst kaffisölu) með
mikið úrval eðlisfræðitækja í tengslum við fimm tölvur.
Enska í heilbrigðisgeiranum
Fjölbrautaskólinn við Ármúla
Michael Dal kynnir
Fjölbrautaskólinn við Ármúla hefur í samvinnu við Totnes Language School í
Bretlandi og fyrirtækið Promentor í Finnlandi unnið að því að búa til
kennsludisk fyrir ensku í heilbrigðisgreinum, English in Healthcare.
Michael er með sýnishorn á geisladiski af því sem þegar hefur verið unnið
og sýnir það kl. 13 á laugardag í líffræðistofu (næst kennslustofu
framtíðar).
Málakennsla á nýjum nótum
Ágústa Bernharðsdóttir, Stefanía Arnórsdóttir, Valfríður Gísladóttir,
Þórdís Magnúsdóttir og Þórhildur Oddsdóttir við Menntaskólann í Kópavogi
Kennarar í dönsku, þýsku og frönsku kynna not af upplýsingatækni í
málakennslu; leit á netinu að upplýsingum sem tengjast námsefni,
margmiðlunardiska þar sem nota þarf erlenda tungumálið við leiki og
samvinnu við norræna skóla þar sem byggt er á tölvupóstsamskiptum og
afrakstur birtur á vefsíðum. Sýninig á vegum kennaranna er í frönskustofu
(næst eðlisfræðistofu) og þar er auglýst hvenær þeir eru í stofunni.
25.02.1999