Þankar
Verkfæri
Tölvur, hugbúnaður og net eiga að vera verkfæri í skólastarfi á
öllum skólastigum. Nemendur, kennarar og annað starfslið eiga að geta beitt
þeim við nám og kennslu, rannsóknir, þróun, samskipti og stjórnun. Tæknin á
hvorki að vera til trafala né lýta; verkfæri eiga að láta lítið yfir sér en
vera innan seilingar þar sem þeirra er þörf.
Nemendur
Nemendur fá með hjálp tölvutækninnar aukin tækifæri til að afla
þekkingar, gera tilraunir, miðla öðrum, eiga samskipti, leika sér, hljóta
þjálfun og öðlast leikni á ótal sviðum. Þeir fá öflugt verkfæri í hendur,
geta borið aukna ábyrgð á námi, lagt meira af mörkum sjálfir og fengið
ýmsan stuðning án afskipta kennara.
Kennari
Kennari þarf síður að beita beinni miðlun og yfirferð og getur
fremur verið til leiðsagnar um vinnubrögð, bent á upplýsingalindir, farið á
milli og leiðbeint stökum nemendum, vakið kapp og áhuga, beint leit í
sameiginlega farvegi, veitt félagslegan stuðning, stuðlað að virkum
samskiptum og góðum anda.
Samskipti
Tengsl milli fólks geta átt sér stað óháð tíma og rúmi.
Fjarlægðir verða þýðingarminni og fötlun hindrar síður samskipti.
Upplýsingatæknin getur stuðlað að agaðri samskiptum og virkari þátttöku.
Tæknina má nota til að halda utan um umræður, spjall og hugmyndir hvort sem
um er að ræða fjarnám eða staðnám. Netnámi verður beitt í báðum tilvikum.
Tölvur
Tölvum og nettengingum fjölgar í skólum. Þess er ekki endilega
langt að bíða að ein eða fleiri tölvur skjóti upp skjánum í hverri stofu og
öllum greinum. Tölvur geta verið stakar eða í hnapp á göngum og bókasafni.
Nota má færanlegar tölvur og hafa tengingar um allt. Tölvuver geta verið
fartölvur á vagni og netsambandið þráðlaust. Svo má ekki gleyma að tölvur
geta sprottið upp úr töskum og vösum nemenda.
Hugbúnaður
Hugbúnaðargerð til náms og kennslu fleygir fram og reynt er að
tryggja stöðu íslenskrar menningar, tungu og staðhátta í þeirri þróun. Ýta
þarf undir nýsköpun og þýðingar. Helstu notendaforrit, stýrikerfi og
væntanleg tungutækni þurfa líka að vera á íslensku. Kennslustofa framtíðar
verður íslensk og alþjóðleg í senn.
Keppikefli
Kennslustofa framtíðar felst í þróun sem er hafin en verður
seint lokið. Hún kostar nám, vinnu og peninga svo að fátt eitt sé nefnt.
Kennslustofa framtíðar felst í viðleitni, framsækni, áhuga, vilja til góðra
verka, mistökum, stórum og smáum skrefum. Kennslustofa framtíðar byggir á
nútíð. Kennslustofa framtíðar er núna.
Torfi Hjartarson
forstöðumaður gagnasmiðju KHÍ
25.02.1999