Forsíða
UT99:        
UPPLÝSINGAR       
SKRÁNING Á RÁÐSTEFNUNA!


    Menntamálaráðuneytið og Skýrslutæknifélag Íslands halda ráðstefnuna UT99.
    Verkefnisstjórn hefur séð um undirbúningsvinnu og framkvæmd ráðstefnunnar.

    Ráðstefnan er haldin í Menntaskólanum í Kópavogi dagana 26. - 27. febrúar 1999

    UT99 er ráðstefna um hvernig beita megi upplýsingatækni til að efla og auðga skólastarf á öllum skólastigum. Nálægt 50 málstofur verða á ráðstefnunni. Jafnframt verður stöðug kennsla í Kennslustofu framtíðar og fjölmörg atriði á sýningarsvæði..

    Skráning fer fram hér eða í síma 553 2460. Einnig verður hægt að skrá sig við innganginn meðan húsrúm leyfir. Þátttökugjald er 1.500 kr. fyrir þá sem skrá sig fyrir 23. febrúar. Eftir það hækkar gjaldið í 2.000 kr.

    Gestum ráðstefnunnar býðst afsláttur á flugi og gistingu hjá Flugfélagi Íslands

    Vonast er til að sem flestir kennarar, skólastjórnendur, foreldrar og aðrir áhugamenn um notkun upplýsingatækni í skólastarfi hafi áhuga á dagskránni.

    23.02.1999