Forsíða
MÁLSTOFUR:       
NETIР      
SKRÁNING Á RÁÐSTEFNUNA!

    Fyrirlesarar verða ýmist einn eða fleiri í málstofu sem tekur 50 mínútur. Hverri málstofu lýkur með umræðum því gestum gefst kostur á að koma með fyrirspurnir.

    23.02.1999           


    Sigurður Davíðsson aðstoðarskólastjóri, Hjallaskóla.

    Hjallaskólavefurinn - upplýsingavefur fyrir foreldra.

    Kynning á þróunarverkefninu Foreldrasamstarf um Netið sem unnið hefur
    verið að í Hjallaskóla í vetur. Meginmarkmið verkefnisins er að efla
    samstarf heimila og skóla með aðstoð Netsins. Tildrög og upphaf
    verkefnisins verða kynnt, rætt um skipulag vefsins og helstu markmið með
    verkefninu.

     


    Vigfús Hallgrímsson kennari, Hjallaskóla í Kópavogi.

    För til fortíðar.

    Kynning á Evrópuverkefni sem Hjallaskóli hefur verið þátttakandi í frá
    árinu 1996 og ber heitið För til fortíðar (Travelling to Mysteryland).
    Sögð verður saga verkefnisins frá upphafi í máli og myndum og sýndur
    afrakstur þess á vefnum eins og verkefnið stendur í dag. Þá verður
    skoðað hvernig samstarfsskólar í Evrópu hafa unnið sams konar efni fyrir
    veraldarvefinn.

     



Georg R. Douglas raungreinakennari, Menntaskólanum við Hamrahlíð.

Nýir lífdagar kennarans - nýtt og breytt hlutverk í heimi
upplýsinga- og margmiðlunartækni.

Fjallað verður um reynslu og upplifun höfundarins á síðustu árum við að
hanna og nota margmiðlunarvefsíður við raungreinakennslu á framhaldsskólastigi.
Sagt verður frá árangri, vandamálum, sem upp hafa komið og lausnum þeirra.
Loks verður athyglinni beint að þeim breytingum sem nauðsynlegar eru á
hugsunarhætti kennara, nemenda og annarra svo að hinir „nýju lífdagar" geti
orðið að veruleika.

 



Harpa Hreinsdóttir framhaldsskólakennari, Fjölbrautaskóla Vesturlands.

Egill í Sýberíu.

Reynt verður að svara hvers vegna ætti að nota Vefinn í móðurmálskennslu og hvernig sú notkun tengist hefðbundnum kennsluaðferðum. Í því skyni verður bent á leiðir, s.s. vefsíðugerð í ritunarkennslu, vefleiðangur, próf, kannanir og verkefni á Vefnum. Meginhlutinn fjallar þó um hugmyndir um margmiðlunarefni sem nýtist sem ítarefni við Egils sögu. Þær tengja annars vegar saman gamlar hugmyndir um frásagnarlist og stiklutexta (hýpertexta), hins vegar hugmyndir um myndmál og form dróttkvæða og nútíma tónlistarmyndbönd.

 



Jóhann Guðjónsson kennari og verkefnastjóri Globe á Íslandi, Flensborgarskóla, Kristín Axelsdóttir kennari, Álftamýraskóla, Þorvaldur Örn Árnason kennari, Fjölbrautaskóla Suðurnesja.

Globe-verkefnið.

Globe er alþjóðlegt verkefni á sviði náttúrufræði og upplýsingatækni þar sem nemendur safna upplýsingum um umhverfi sitt og færa inn í alþjóðlegan gagnagrunn sem þeir geta sótt úrvinnslur í, bæði eigin og 5000 annara skóla í 76 löndum.

 



Eygló Björnsdóttir kennari, Barnaskólanum í Vestmannaeyjum, Hilda Torfadóttir kennari, Síðuskóla á Akureyri, Kolbrún Hjaltadóttir kennari, Breiðholtsskóla.

Kidlink á Íslandi.

Kidlink, sem er alþjóðlegt tölvusamskiptaverkefni fyrir þá sem ekki hafa náð 16 ára aldri (eða eru enn í grunnskóla). Kidlink á íslensku hefur aðeins verið til í tæp tvö ár og fór rólega af stað en nú virðist vera að færast fjör í leikinn og krakkar í skólum víða á landinu taka þátt í verkefnunum og nota tölvupóstinn. Þá er Kidlink með
lokaðar spjallrásir sem hafa nokkuð verið notaðar af íslenskum krökkum.
Verkefnin tvö sem eru í gangi á Kidlink á íslensku eru annars vegar um
hvali og menn og hins vegar um þjóðtrú og þjóðsögur. Auk þeirra má finna á
Kidproj á íslensku verkefni sem hafa verið þýdd til þess að gera þau
aðgengilegri fyrir íslensk ungmenni.

 



Sólveig Þorsteinsdóttir bókasafns- og upplýsingatæknifræðingur, Verslunarháskóla Reykjavíkur.

Notkun rafrænna upplýsingalinda á Internetinu.

Leit í upplýsingalindum á sviði menntamála á Internetinu. Kynntir verða helstu gagnagrunnar á þessu sviði og fjallað um efnisöflunaraðferðir og leitartækni. Öruggar og óöruggar heilmildir. Hvernig hægt er að nota upplýsingar frá upplýsingalindum í skólastarfinu. Loks verður fjallað um samtengingu upplýsingalinda við aðrar upplýsingar á Internetinu.

 



Salvör Gissurardóttir lektor í upplýsingatækni og tölvunotkun, Kennaraháskóla Íslands.

Að nota vefinn við kennslu – vefleiðangrar.

Kynning á einfaldri og aðgengilegri leið fyrir almenna kennara til að nota vefinn sem hjálpartæki í kennslu og búa til verkefni með þessum nýja miðli. Kynntur verður íslenskur verkefnabanki vefverkefna eftir kennara og kennaranema.

 



Brynhildur Ragnarsdóttir kennsluráðgjafi, Norræna Húsinu.

Tungumál á tímamótum.

Brynhildur stýrir málstofu þar sem neðangreindir aðilar kynna verkefni sem þau eru að vinna sem eiga það sameiginlegt að nýta upplýsingatækni til kennslu og fjarnáms í móðurmálskennslu og kennslu á erlendum tungumálum.



Grétar Skúlason kennari, Kvennaskólanum í Reykjavík.

Notkun Netsins í frönsku í Kvennaskólanum.


Gry Ek Gunnarsson kennsluráðgjafi, Fræðslumiðstöð Reykjavíkur.

Kennslustofa án veggja.


Þórhildur Oddsdóttir kennari, Menntaskólanum í Kópavogi.

Fagdanska á neti.


Auður Torfadóttir lektor, Kennaraháskóla Íslands.

Menningarmiðlun af neti.




Ingibjörg Sverrisdóttir bókasafnsfræðingur, menntamálaráðuneyti.

Notkun upplýsingatækni á skólasöfnum.

Fjallað verður um hvernig skólasöfn geti best gegnt hlutverki sínu sem upplýsingamiðstöðvar menntastofnana, aðgang nemenda og kennara að safnkostinum, bæði hefðbundnu prentuðu efni og nýsigögnum og síðan margmiðlunarefni, gagnabönkum og Netinu. Hvaða búnaður, gögn og starfsfólk þarf að vera til staðar og hvernig öðlast nemendur færni í upplýsingaleit.

 



Hilmar Pétursson kennari, Menntaskólanum að Laugarvatni og Ásborg Ósk Arnþórsdóttir ferðamálafulltrúi uppsveita Árnessýslu.

ÍsEldur, upplýsingavefur um ferðamál - samstarf skóla og sveitarfélaga.

Menntaskólinn að Laugarvatni hefur gert samning við ferðamálanefnd
uppsveita Árnessýslu um gerð upplýsingavefs á Netinu. Nemendur skólans
annast gerð vefsins undir umsjá kennara. Markmið skólans er að auka
námsmöguleika nemenda í tölvunotkun og að tengja nám í öðrum hefðbundnari
námsgreinum við notkun upplýsingatækni.

 



Ásrún Matthíasdóttir kennari, Menntaskólanum í Kópavogi og Þorvaldur Pálmason kennslustjóri, Íslenska menntanetinu.

Gagnvirk próf og kannanir.

Kynntar verða tvær aðferðir við gerð gagnvirkra prófa, fjallað um gildi
slíkra verkefna í skólastarfi og sýnt hvernig unnt er að safna slíku efni
saman á gagnvirkan hátt.



Dr. Freyr Þórarinsson kennari, Viðskiptaháskóla Reykjavíkur.

Kennslumat á Internetinu

Í Verzlunarskóla Íslands og Í Viðskiptaháskólanum í Reykjavík hefur undanfarið ár verið framkvæmdar viðhorfskannanir meðal nemenda með aðstoð vef-forrita. Einfalt er að setja upp spurningalista fyrir kannanir, framkvæmd þeirra er auðveld og niðurstöður liggja strax fyrir. Gerð verður grein fyrir tæknilegri hlið málsins og fjallað almennt um niðurstöðurnar og notkun þeirra.



Húgo Rasmus kennari, Hjallaskóla og Tómas Rasmus kennari, Flúðaskóla.

Stærðfræðivefur H&T. - Hvað er Stærðfræðivefur H&T. ?

Þjálfunarkerfi í stærðfræði sem viðbót við önnur gögn í grunnskólum.

Reynt að hjálpa nemendanum til að fá heildstætt yfirlit yfir þekkingu sína á takmörkuðu sviði í stærðfræði.

Öflugur stuðningur við stærðfræðikennslu unglingastigsins.

Tæki til að virkja nemandann til ábyrgðar á námi sínu og gera hann betur færan um að takast á við nám í framhaldsskólum þar sem einstaklingurinn nýtur ekki sömu umhyggju og í grunnskólum.

Að mynda bein lifandi tengsl milli heimilis og skóla.

Að veita nemendum beina svörun við þeim verkefnum sem hann er að fást við, á hans forsendum og eigin vinnuhraða.

Að gefa nemandanum tækifæri að vinna með foreldrum sínum án mikillar fyrirhafnar á eigin heimili við að bæta þjálfun og færni nemandans í stærðfræði.